Fara í efni  

Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga á Akranesi

Akraneskaupstaður veitir 10,9 milljónum til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi. Markmiðið er að styðja virk íþrótta- og tómstundafélög á Akranesi til að halda uppi öflugu íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. 

Styrkir þessir eru veittir til þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga 3 - 18 ára. Skilyrði er að félagið hafi starfað í a.m.k. 2 ár og staðið skil á lögformlegum skyldum sínum. 

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Styrktímabil er 1. janúar - 31. desember 2015. Umsóknarfrestur er til 26. maí 2016. Nánari upplýsingar veitir skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 eða með tölvupóst á netfangið skoliogfristund@akranes.is


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00