Fara í efni  

Sturlaugur hóf störf sem bæjarstjóri í dag

„Ég er mjög spenntur fyrir verkefnunum framundan,“ segir Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, sem hóf formlega störf í dag.

Hann segir fjölmörg tækifæri blasa við á Akranesi. „Bæjarstjórn er vel skipuð og starfsfólk Akraneskaupstaðar er öflugt. Ég hef trú á að við munum ná árangri. Á sama tíma finn ég fyrir þunga ábyrgðarinnar sem hvílir á okkar herðum. Það eru áskoranir í rekstrinum og krefjandi efnahagsástand framundan. Við þurfum öll að vera á tánum og sækja fram af festu.“

Sturlaugur nefnir að áhersla verði lögð á að efla atvinnulífið. „Við erum þegar farin að vinna í ákveðnum hugmyndum hvað það varðar,“ segir Sturlaugur og bætir því við að á sama tíma verði markvisst unnið að því að bæta áfram lífsgæði íbúa.

„Akranes er mikill fjölskyldubær þar sem frábært er að ala upp börn. Leikskólarnir og grunnskólarnir eru okkar stolt auk þess sem íþróttir og tónlist skipa stóran sess í uppeldi barnanna okkar. Við munum standa vörð um þetta og efla menningarlífið. Það eru fáir betri í því að halda stóra viðburði og tónleika en við Skagamenn. Við ætlum að byggja áfram á þeim styrkleika og skapa enn meira líf og fjör í bænum.“


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu