Fara í efni  

Ný hjólreiðasýning á Akratorgi

Vera Líndal verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, Erla Dís Sigurjónsdóttir hér…
Vera Líndal verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, Erla Dís Sigurjónsdóttir héraðsskjalavörður og Eyþór Óli Frímannsson frá Topp Útlit.

Í dag var sett upp ný og stórskemmtileg hjólreiðasýning á Akratorgi undir yfirskriftinni "Minningar á hjólum". Það eru Akraneskaupstaður og Héraðsskjalasafn Akraness sem standa fyrir þessari lifandi sýningu, þar sem ljósi er varpað á hjólamenningu bæjarins í gegnum árin. Á sýningunni má sjá fjölbreyttar myndir sem fanga hversdagslíf, leik og ferðalög á hjólum.

Akranes hefur einstaka sérstöðu þegar kemur að hjólreiðum. Bærinn er flatlendur, vegalengdir stuttar og auðvelt að komast á milli staða á einfaldan og umhverfisvænan hátt. Þetta hafa fjölmargir íbúar nýtt sér í gegnum tíðina, en full ástæða er til að hvetja sem flesta til að vera duglegir við að nota þennan umhverfisvæna, hagkvæma og heilsueflandi fararmáta. 

Inni á vef Ljósmyndasafns Akraness má finna upplýsingar um sýninguna og myndirnar sem á henni eru. Auk þess er þar að finna kort með skemmtilegum hjólaleiðum kaupstaðarins.

Við hvetjum bæjarbúa og gesti eindregið til að gera sér ferð á torgið og skoða sýninguna, en flestir ættu að kannast við einhver af þeim mörgu andlitum sem eru á myndunum.

Sérstakar þakkir fær Topp Útlit fyrir prentun og uppsetningu á Akratorgi, en á meðfylgjandi mynd má sjá starfsmenn vinna að uppsetningu sýningarinnar í dag.

Vefur Ljósmyndasafns Akraness


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu