Fara í efni  

Störf við liðveislu laus til umsóknar

Langisandur á Akranesi.
Langisandur á Akranesi.

Um er að ræða hlutastörf í liðveislu með fötluðum börnum / unglingum. Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 20 ára og hafi þekkingu á málefnum fatlaðra barna og/eða  reynslu af vinnu með börnum. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bílpróf og hafi aðgang að bíl.

Vinnustundir eru á bilinu 8-30 klst. á mánuði og er að öðru jöfnu seinnipart dags eða um helgar þannig að starfið hentar vel t.d. háskólanemum. Launakjör eru skv. kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. Karlar jafnt sem konur eru hvött til þess að sækja um störfin.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2015. Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða með því að skila inn umsókn í þjónustuver á 1. hæð að Stillholti 16-18.

Nánari upplýsingar veitir Arnheiður Andrésdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi í tölvupósti eða í síma 433-1000.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00