Stjörnu-Sævar í heimsókn vegna almyrkva
Það voru áhugasamir ungir Skagamenn sem tóku á móti Sævari Helga Bragasyni, betur þekktum sem Stjörnu-Sævari, þegar hann heimsótti nemendur í grunn- og leikskólum bæjarins á dögunum. Tilefnið var almyrkvi á sólu þann 12. ágúst næstkomandi sem verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954.
Almyrkvinn mun sjást vel hér á Akranesi, en einnig frá Vesturlandi, Vestfjörðum, Snæfellsnesi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
Af því tilefni mun Akraneskaupstaður færa öllum nemendum í grunnskólum bæjarins og elstu börnum í leikskólunum sérmerkt sólmyrkvagleraugu að gjöf sem gera þeim kleift að fylgjast með almyrkvanum á öruggan hátt. Gleraugun uppfylla ítrustu kröfur um öryggi, veita 100% vernd gegn útfjólubláu og innrauðu ljósi auk þess að sía í burtu 99,999% af styrk sólarljóssins.

Stjörnu-Sævar heldur úti vefsíðunni www.solmyrkvi2026.is en þar má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar, til að mynda hvað varðar öryggi augna og notkun sólmyrkvagleraugna.
Í heimsókn sinni á Skagann sagði Sævar krökkunum ýmislegt um almyrkvann, til dæmis að þetta mun vera fyrsti almyrkvinn sem sést frá Akranesi frá því árið 73 eftir Krist. Það er því óhætt að segja að um sögulegan viðburð sé að ræða.






