Fara í efni  

Starf skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi

Nemendatónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans.
Nemendatónleikar í Tónbergi, sal Tónlistarskólans.

Við leitum að umbótasinnuðum og farsælum leiðtoga til þess að sinna starfi skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi frá og með 1. ágúst 2016. Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og KÍ/FÍH.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Veita Tónlistarskólanum faglega forystu.
  • Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs á Akranesi.
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri.
  • Samstarf við bæjaryfirvöld og aðila skólasamfélagsins.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum er skilyrði.
  • Menntun á sviði tónlistar er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun á sviði tónlistar æskileg.
  • Reynsla af tónlistarkennslu og tónlistarflutningi er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun í stjórnun og/eða þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Svala Hreinsdóttir sviðsstjóri í síma 433-1000 eða í tölvupósti á netfangið í skoliogfristund@akranes.is.

Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.  Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 12 . maí 2016.

Í samræmi við mannréttindastefnu Akraneskaupstaðar eru bæði karlar og konur hvött til að sækja um starfið. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00