Fara í efni  

Staða framkvæmda við endurnýjun potta á Jaðarsbökkum

Tafir hafa verið við framkvæmdir á endurnýjun potta á Jaðarsbökkum. Vinnu við flísalögn vaðlaugar er lokið og flísalögn við svokallaðan friðarpott er langt komin. Eftir er að flísaleggja nuddpottinn en reiknað er með að þeirri vinnu ljúki upp úr miðjum júní.  Samhliða flísalögn nuddpotts verða aðrir verkliðir kláraðir s.s. lagning gúmmíhella á svæðið og girðing sett upp. Vinna við pípulagnir og rafmagn er langt komin og að verða lokið.

Í millitíðinni er stefnan á að opna aðgang að vaðlaug áður en heildarframkvæmd lýkur. Verktaki stefnir síðan að því að heildarframkvæmd verði lokið seinnipart júní mánaðar.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00