Snyrting gróðurs á lóðarmörkum
19.08.2026
Almennt - tilkynningar
Gróður hefur víða vaxið vel í sumar og eru garðeigendur vinsamlegast beðnir um að snyrta trjágróður sem kominn er út fyrir lóðarmörk. Þau tilmæli koma fyrst og fremst til þess að tryggja öruggar og greiðar leiðir um gangstéttar bæjarins fyrir bæði hjólreiðendur og göngufólk.
Í 11. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akraneskaupstað kemur eftirfarandi meðal annars fram:
- Gróður, s.s. tré, runnar o.s.frv. skulu ekki skaga út í eða út yfir gangstéttar, gangstíga eða götur, þó er heimilt að þau skagi út yfir, ef hæð þeirra er a.m.k. 2,8 m yfir gangstétt eða gangstíg, en 4,0 m yfir götu.
- Einnig skal húsráðendum skylt að snyrta allan gróður, þ.m.t. trjágróður, sem liggur að almannafæri þannig að umferð vegfarenda sé óhindruð.
Þá bendum við á að hægt er að losa garðaúrgang í skeifuna fyrir ofan móttökustöðina Gámu, (sjá grænan ramma). Annan úrgang en garðaúrgang þarf að fara með í þar til gerða flokkun í móttökustöð Gámu.





