Skólasetning í grunnskólum á þriðjudag
Á þriðjudag, þann 25. ágúst, verður skólasetning í grunnskólum Akraness eftir sumarfrí. Þá munu 110 börn stíga sín fyrstu skref í grunnskóla og byrja í 1. bekk. Heildarfjöldi nemenda í Brekkubæjarskóla verður 457 og 699 í Grundaskóla. Það verða því 1.156 nemendur sem munu stunda nám í grunnskólum bæjarins í haust og vetur.
Foreldrar og nemendur eru eindregið hvattir til að undirbúa sig vel fyrir upphaf skólaársins og kynna sér mikilvægar upplýsingar á heimasíðum sinna skóla.
👉 Við upphaf skólaárs er mikilvægt að nemendur komi með skólatösku, nesti, sundföt (ef það á við), auka fatnað í tösku og föt sem henta veðri. Skólinn útvegar allar bækur og ritföng.
👉 Frístundaheimili eru í boði fyrir nemendur í 1.-4. bekk skólanna. Grundaskóli er með Grundasel og Brekkubæjarskóli með Brekkusel fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Nemendur í 3. og 4. bekk hafa svo aðgang að Krakkadal í Þorpinu. Skráning fer fram í gegnum Völu frístund: https://fristund.vala.is/umsokn/#/login
Foreldrar eru einnig minntir á að hægt er að hafa samband við tengilið vegna samþættingar þjónustu barna með auknar stuðningsþarfir, til dæmis með því að smella hér.
Tímasetningar skólasetningar eru aðgengilegar á heimasíðum skólanna. Foreldrar og forráðamenn eru auk þess hvattir til að kynna sér skóladagatalið vel og punkta hjá sér mikilvægar dagsetningar.
🔗 Skólasetning Brekkubæjarskóla
🔗 Skóladagatal Brekkubæjarskóla





