Fara í efni  

Skemmtileg heimsókn nemenda úr þriðja bekk í Grundaskóla

Nemendur þriðja bekkjar Grundaskóla.
Nemendur þriðja bekkjar Grundaskóla.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri fékk skemmtilega heimsókn í dag frá nemendum þriðja bekkjar í Grundaskóla. Nemendur eru um þessar mundir að fræðast um Akranes og hafa þau farið í fjölmargar fyrirtækjaheimsóknir því tengdu.

Með heimsókninni vildu þau fræðast meira um starf bæjarstjóra og voru búin að undirbúa sig með spurningum á borð við hvernig vinnudagurinn hjá bæjarstjóra væri, hvernig bæjarstjórnarfundir færu fram, hverju bæjarstjórinn fengi að ráða sjálfur og fleira skemmtilegt. Svo komu þau því auðvitað á framfæri að þau vilja grasvöll fyrir utan Grundarskóla.  

Akraneskaupstaður þakkar nemendum og kennurum í  þriðja bekk í Grundaskóla fyrir skemmtilega heimsókn.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00