Fara í efni  

Skagamenn fylltu Bíóhöllina til að sjá Elmu

“Við skutum allt á Akranesi sem á að gerast á Akranesi. Það var svo mikil veisla, það var svo gaman og þið eruð svo gestrisin og gott fólk,” sagði Karen Björg Þorsteinsdóttir einn handritshöfunda þáttaraðarinnar Elmu frammi fyrir fullum sal í Bíóhöllinni í gærkvöldi. Tilefnið var forsýning á fyrsta þætti, en hann verður frumsýndur í Sjónvarpi Símans í kvöld. 

Eins og Skagamönnum er kunnugt um voru þættirnir teknir upp á Akranesi á síðasta ári enda eru þeir byggðir á metsölubók Evu Bjargar Ægisdóttur “Marrið í stiganum” þar sem sögusviðið er Akranes. Þáttaröðin segir frá rannsóknarlögreglukonunni Elmu Jónsdóttur sem snýr aftur á æskuslóðir sínar á Akranesi eftir mikið áfall í Reykjavík. Hún vonast eftir rólegra lífi á Skaganum en það reynist skammgóður vermir.

Eva Björg mætti á forsýninguna ásamt fjölskyldu sinni. Það gerðu líka Andri Freyr Hlynsson framleiðandi hjá Glassriver, Katrín Björgvinsdóttir leikstjóri og fyrrnefnd Karen Björg.

Mikil spenna hefur ríkt yfir útkomunni og mun færri komust að á forsýninguna en vildu. Eva Björg, sem er einn af fyrrverandi bæjarlistamönnum Akraness, flaug svo til Frakklands nú í morgunsárið til að taka við enn einum verðlaunum fyrir bækur sínar sem hafa komið út í yfir 20 löndum og notið ómældra vinsælda.

Óhætt er að segja að þættirnir lofi afar góðu og næsta víst að Skagamenn munu margir sitja límdir framan við skjáinn á næstunni. Sérstaklega var áhugavert að sjá hvernig tökuteymið hafði breytt Landsbankahúsinu í lögreglustöð, en hér má sjá framkvæmdastjóra verkefnisins segja frá þeirri framkvæmd.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu