Sextíu ný hjúkrunarrými bætast við á Höfða
„Akraneskaupstaðar fagnar því að þessi mikilvægi áfangi sé í höfn, enda þörfin brýn og biðlistinn langur,“ segir Steinar Adolfsson starfandi bæjarstjóri á Akranesi, en í dag voru undirritaðir samningar um stækkun hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða um 60 hjúkrunarrými. Í dag eru 75 íbúar á Höfða, þar af tveir í skammtímarýmum. Hjúkrunarrýmum mun því fjölga um 80% þegar nýja heimilið verður tekið í notkun.
Akraneskaupstaður leggur til lóðina og auglýst verður eftir aðila til að hanna og byggja nýja heimilið. Ríkið leigir húsið síðan með leigusamningi til 20-30 ára. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir við heimilið hefjist á næsta ári, en að þeim loknum verða alls 135 íbúar á Höfða.

Gert er ráð fyrir að nýja hjúkrunarheimilið verði tengt við núverandi hjúkrunarheimili á nýrri lóð sem verður skipt út úr Sólmundarhöfða. Samkomulagið er gert með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjárlögum fyrir uppbyggingu húsnæðisins og rekstri hjúkrunarrýmanna. Þá er gerður fyrirvari um endanlegt samþykki tilheyrandi skipulagsyfirvalda.
„Akraneskaupstaður fyrir sitt leyti leggur áherslu á að áætlun um uppbyggingu gangi eftir þannig að framkvæmdir geti hafist á árinu 2027 og að taka megi heimilið í notkun á árinu 2028 eða fyrri hluta árs 2029,“ segir Steinar.
Mikilvægt skref í að bæta þjónustu við eldra fólk
„Þessi mikla viðbót á Akranesi er stórt og mikilvægt skref fyrir Skagamenn og fyrir allt Vesturland. Með 60 nýjum hjúkrunarrýmum getum við betur mætt þörfum eldra fólks á svæðinu og veitt fleiri fjölskyldum það öryggi og þá þjónustu sem þær eiga skilið,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Höfða fagnar samkomulaginu. „Höfði hefur verið einn af hornsteinum samfélagsins frá árinu 1978. Heimilið hefur notið trausts og góðs orðspors í gegnum tíðina, ekki síst vegna starfsfólksins sem hefur í gegnum árin lagt metnað og alúð í að veita íbúum góða og faglega umönnun. Því er það mikið gleðiefni að nú eigi að ráðast í þessa verulegu stækkun sem mun stytta bið eftir hjúkrunarrýmum á Höfða og gera heimilinu kleift að mæta vaxandi þörf í samfélaginu.“






