Fara í efni  

Samþykkt breyting deiliskipulags Ægisbrautar - Vallholt 5

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 11. apríl 2017 breytingu á deiliskipulagi Ægisbrautar vegna Vallholts 5. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagssaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur þeim, sem gerðu athugasemdir, verið send umsögn sveitarstjórnar. Deiliskipulagið er samþykkt með þeirri breytingu að bílastæðum var fjölgað úr 12 í 16. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00