Samstillt átak skilaði öruggri hátíð
Írskir dagar fóru fram nýverið í einstöku veðri og tókst hátíðin með eindæmum vel. Fjölbreytt dagskrá var í boði í heila viku og á Lopapeysusvæðinu voru tónleikar á hverju kvöldi frá þriðjudegi til laugardags. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hversu margir heimamenn tóku virkan þátt og lögðu sitt af mörkum til að skapa þá einstöku stemningu sem einkenndi bæinn.
Eins og fram hefur komið er áætlað að um 10.000 manns hafi komið saman á brekkusöngnum á föstudag og um 5.000 gestir sóttu tónlistarhátíðina Lopapeysuna. Mikill fjöldi gesta var í bænum alla hátíðina, tjaldsvæðið fullt og fjölmargir lögðu leið sína í dagsferðir til að njóta dagskrárinnar.
Það sem stendur þó upp úr er að hátíðin fór afar vel fram og engin alvarleg atvik enduðu á borði lögreglu. Sá frábæri árangur er ekki tilviljun heldur afrakstur samstillts átaks skipuleggjenda, bæjaryfirvalda, viðbragðsaðila, barnaverndar, foreldra og tónleikahaldara.

Lögregla var með mikinn viðbúnað alla helgina og á hátíðarsvæðinu voru 14 starfsmenn í svokölluðum gönguhópum á laugardagskvöld. Einnig var lögregla með drónateymi og gat þannig fylgst með bæði hátíðarsvæðinu og umhverfi þess úr lofti. Til viðbótar við gönguhópana voru 5 áhafnir á lögreglubifreiðum sem sinntu útköllum og verkefnum. Flotinn, Arnardalur og barnavernd unnu vel með lögreglu. Auk þessa var sólarhringsgæsla á tjaldsvæðinu og aðstandendur Lopapeysunnar voru með mikla og öfluga gæslu á sínum vegum. Á sunnudag sá svo vaskur hópur um tiltekt og þrif.
Þetta sameiginlega átak skilaði sér í öruggri og ánægjulegri hátíð.
Rétt er að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg í að gera hátíðina að því sem hún var. Sjálfboðaliðum, starfsfólki, viðbragðsaðilum, skpuleggjendum, listafólki, fyrirtækjum og íbúum. Einnig öllum þeim góðu gestum sem lögðu leið sína í bæinn og skemmtu sér fallega.
Sjáumst á Irskum dögum 2027.





