Fara í efni  

Saga Akraness seld á menningarstofnunum bæjarins

Byggðasafnið í Görðum
Byggðasafnið í Görðum

Bæjarráð Akraness samþykkti tillögu bæjarstjóra um heimild til að selja ritið Sögu Akraness á menningarstofnunum bæjarins. Akraneskaupstaður eignaðist 250 sett af ritinu  þegar fyrirtækið Uppheimar varð gjaldþrota. Fyrir lagerinn greiddi bærinn 500 þúsund en ásamt Sögu Akraness fékk bærinn einnig töluvert magn af Árbók Akraness.

Fyrra bindi Sögu Akraness spannar tímabilið frá landnámstíð til 1700. Sögusviðið er landnám Ketils og Þormóðs Bresasona en í bókinni kemur fram að Bresasynir séu af gelískum ættum og eru Írskir dagar haldnir hátíðlegir til að minnast landnámsins. Annað bindi gerir átjándu öldinni skil. Uppbygging sjávarútvegsins og sjósókn Akurnesinga mynda þar ákveðna þungamiðju. Höfundur Sögu Akraness er Gunnlaugur Haraldsson sagnfræðingur. Bækurnar koma í sölu eftir helgi og verða seldar á Bókasafni Akraness og Byggðasafninu að Görðum. Einnig verður versluninni Eymundsson á Akranesi boðið að selja bækurnar. Bindin verða seld saman á 5 þúsund krónur.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00