Fara í efni  

Örnefnaganga á Írskum vetrardögum

Ljósmynd: Guðni Hannesson.
Ljósmynd: Guðni Hannesson.

Landmælingar Íslands stóðu fyrir örnefnagöngu í blíðskaparveðri í dag í tilefni af Írskum vetrardögum. Það voru þau Rannveig Benediktsdóttir, Guðni Hannesson og Eydís Finnbogadóttir sem miðluðu af fróðleik sínum. Upphaf göngunnar var á Aggapalli þar sem sagðar voru sögur af Langasandi, Þjótnum, Jaðarsbökkum að ógleymdum Agga, sem pallurinn er nefndur eftir. Þaðan lá leiðin að Krossvíkurvita og síðan á Sólmundarhöfða þar sem göngumenn fundu fornan neysluvatnsbrunn innan um kúmenplöntur sem vaxa í miklu magni á höfðanum. Næst var gengið í kirkjugarðinn og sagðar sögur og endað við írska steininn.

Örnefnagangan markar upphafið að Írsku vetrardögunum sem standa yfir fram á sunnudag og eru nýjung í menningarlífi Akurnesinga.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00