Nýr bæklingur um farsæla öldrun
Á dögunum var nýr bæklingur um farsæla öldrun borinn í hús á Akranesi til íbúa sem eru 65 ára og eldri. Dreifingin var í höndum barna í Körfuknattleiksfélagi ÍA.
Í bæklingnum er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um það sem stendur þessum aldurshópi til boða á Akranesi, til að mynda varðandi tómstundir, hreyfingu, þjónustu og þannig mætti áfram telja.
Hafi fólk ábendingar um viðbætur sem ættu heima í bæklingnum er hægt að senda þær á akranes@akranes.is.
Þeir sem einhverra hluta vegna fengu bæklinginn ekki inn um bréfalúguna, en tilheyra aldurshópnum og vilja fá eintak geta nálgast hann í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Dalbraut 4.
Einnig er hægt að koma bæklingnum til þeirra sem ekki eiga heimangengt. Þeir sem vilja nýta þá þjónustu geta sent póst á akranes@akranes.is eða hringt í þjónustuverið í síma 433 1000.
Íbúar eru eindregið hvattir til að skoða bæklinginn og kynna sér þá fjölbreyttu möguleika sem standa eldri og heldri íbúum bæjarins til boða. Hann er hægt að skoða í heild með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.





