Fara í efni  

Nauðsynlegt að óska eftir leyfi vegna götulokana

Nú styttist í Írska daga með tilheyrandi hátíðahöldum um allan bæ. Götugrillin hafa verið fastur liður í dagskránni lengi, en íbúar eru minntir á að ef til stendur að loka götum eða botnlöngum er nauðsynlegt að óska eftir þar til gerðu leyfi, meðal annars til að tryggja að neyðaraðilar viti af lokunum í bænum.

Hægt er að sækja um leyfi með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og fylla út eyðublað undir yfirskriftinni "Tilkynning um truflun á umferð". Umsóknin verður svo yfirfarin af viðbragðsaðilum sem gefa leyfi fyrir lokuninni.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 29. júní.

Sækja um götulokun


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu