Fara í efni  

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Samkvæmt tilkynningu frá Speli verða Hvalfjarðargöng lokuð fjórar nætur í þessari viku (17. viku ársins). Vakin er sérstök athygli á að lokað verður kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl en á miðnætti næstu þrjú kvöld þar á eftir. Næturlokun ganganna á þessum tíma árs er hefðbundinn vor- og sumarboði, tími sem nýttur er til viðhalds af ýmsu tagi og hreingerningar.

Lokað verður sem hér segir í þetta sinn:

  • Frá kl. 22 að kvöldi mánudags 24. apríl til kl. 6 að morgni þriðjudags 25. apríl.
  • Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.
  • Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.
  • Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00