Fara í efni  

Menningarverðlaun Akraness 2026 - Tilnefningar óskast

Mennta- og menningarráð Akraneskaupstaðar óskar eftir tilnefningum til menningarverðlauna Akraness 2026.

Á menningarhátíðinni Vökudögum hafa hin árlegu menningarverðlaun verið veitt. Ár hvert er óskað eftir tilnefningum frá bæjarbúum og hvetjum við öll áhugasöm til að senda inn sínar tillögur um þá einstaklinga eða hópa sem hafa glætt menningu bæjarins lífi með eftirtektarverðum hætti.

Frestur til að tilnefna er til og með 14. september 2026

Nálgast má eyðublað fyrir tilnefningar hér.

Ef ykkur vantar innblástur í valinu, þá hafa eftirtalin hlotið menningarverðlaun Akraness:
 
2025 Ægisbraut Records fyrir snælduútgáfu, menningar- og tónlistarlíf
2024 ÍATV fyrir skrásetningu og miðlun Íþróttaviðburða
2023 Heimildarmyndahátíðarin Ice docs fyrir þeirra frábæra menningarstarf
2022 Kellingar fyrir frábærar sögugöngur um Akranes
2121 Flosi, Gunnar Sturla og Einar Viðarsson fyrir framlag þeirra til listgreina innan skólasamfélagsins
2020 Árbók Akurnesinga fyrir ómetanlega heimildarvinnu fyrir komandi kynnslóðir
2019 Útvarp Akranes fyrir frábæra og fjölbreytta dagskrá
2018 Ásmundur Ólafsson fyrir hans stóra og mikilvæga greinasafn um merka atburði og framfaramál í sögu Akraness
2017 Guðbjörg Árnadóttir fyrir störf hennar við Skagaleikflokkinn, og fjölda leiklistartengdra viðburða á Akranesi
2016 Club 71 fyrir viðburðahald (þorrablót og brekkusöng t.d, ágóði hefur runnið til íþrótta- og menningarstarfs)
2015 Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi
2014 Heiðrún Hámundardóttir tónmenntakennari
2013 Guðmundur Sigurðsson hagleiks- og hugsjónamaður
2012 Vinir hallarinnar fyrir menningar- og listalíf
2011 Lárus Sighvatsson fyrir starf sitt sem skólastjóri Tónlistarskólans
2010 Flosi Einarsson tónlistarmaður
2009 Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness
2008 Bókaútgáfan Uppheimar
2007 Haraldur Sturlaugsson og Ingibjörg Pálmadóttir vegna Haraldarhúss
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu