Lokun á þrekaðstöðu á Jaðarsbökkum
13.06.2025
Vegna fyrirhugaðrar opnunar á nýrri líkamsræktaraðstöðu lokar núverandi rækt frá og með 26. júní 2025. Þetta á við þrekaðstöðu og minni sali í Bragganum á Jaðarsbökkum.
Við bendum þeim sem eiga árskort í gildi á eftirfarandi:
- Eftirstöðvar korta verða endurgreiddar miðað við dagsetninguna 26.júní 2025.
- Þeir sem eiga kort er bent á að hægt verður að skila þeim inn í afgreiðslunni á sundlauginni á Jaðarsbökkum frá og með 26.júní til og með 31.júlí n.k. og ganga frá endurgreiðslu. Eftir þann tíma miðast endurgreiðslan við eftirstöðvar frá og með þeim degi sem korti er skilað inn.
- Endurgreitt er beint inn á kort viðkomandi, á meðan beðið er.
- Þeir sem ekki geta fengið greitt inn á kort geta óskað eftir millifærslu á eftirstöðum kortsins. Slíkt tekur þó almennt lengri tíma, og hvetjum við fólk til að nýta sér endurgreiðslur beint inn á kort, ef það er möguleiki.
- Þeir korthafar sem eiga kort sem keypt eru í gegnum Norðurál þurfa að framvísa starfsmannakorti vegna endurgreiðslunnar.
- Korthafar sem keypt hafa kort með frístundastyrk er bent á að senda tölvupóst á endurgreidsla@akraneskaupstadur.is og verður eftirstöðvar endurgreiddar þannig að upphæð frístundastyrks uppfærist að nýju.
Á sama tíma verður hægt að skila inn ónotuðum miðum sem gilda í þrek. Við bendum þó á að hægt verður að nota slíka miða sem greiðslu í sund í framhaldinu, Sama fyrirkomulag gildir við skil á miðum og kortum. Þeir eru endurgreiddir frá og með 26.júnímiðað við fjölda miða sem eftir eru og hægt að óska eftir endureiðslu til og með 31.júlí.
- Mikilvægt er að sýna staðfestingu á kaupum (t.d. færslu úr heimabanka) vegna endurgreiðslu á miðum.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband á tölvupóstfangið endurgreidsla@akraneskaupstadur.is