Fara í efni  

Leyfið götuljósum að lýsa

Gróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur þrengt að umferð og nauðsynlegri þjónustu á göngustígum, gangstéttum og götum, og dregið úr öryggi vegfarenda. Einnig þurfa umferðarmerki að sjást vel og gróður má alls ekki byrgja götu- og stígalýsingu.

Sérstaklega skal huga að því að klippa greinar frá ljósastaurum og lömpum svo að birta frá þeim lýsi upp gangsstéttir og aðrar gönguleiðir. Miða skal við að greinar séu minnst 0,5 m frá lýsingunni.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu