Leitum að fagstjóra í búsetukjarna
Akraneskaupstaður auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra í búsetuþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð og stuðning við fólk til að lifa sjálfstæðu lífi á heimili sínu jafnt sem utan þess. Markmiðið er að efla vald fólks yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd þess, sjálfstraust, félagslega stöðu, sjálfsvirðingu og lífsgæði og stuðla að samfélagsþátttöku. Mannréttindi einstaklingsins og réttur hans til einkalífs skal ávallt hafður í heiðri.
Fagstjóri skipuleggur og ber ábyrgð á faglegu starfi hjá þeim þjónustuþegum sem honum eru skipaðir af forstöðumanni. Þjónustan getur verið allt frá því að veita leiðbeiningar eða minniháttar aðstoð við heimilishald upp í að aðstoða einstaklinga við allt er lýtur að þeirra daglega lífi. Starfinu fylgja mikil samskipti við notendur, starfsmenn, aðstandendur og samstarfsaðila innan og utan kerfis. Það krefst lipurðar í mannlegum samskiptum, frumkvæðis og skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða.
Fagstjóri gengur vaktir þar sem 70% eru almennar vaktir og 30% undirbúningsvaktir. Um er að ræða 90-100% stöðu.
Hægt er að sækja um starfið og fá allar nánari upplýsingar með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar





