Fara í efni  

Leikjanámskeið Þorpsins 2018

Leikjanámskeið Þorpsins 2018

Í sumar býður Frístundamiðstöðin Þorpið uppá leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6-10 ára (2008-2012). Tímabilið er tvískipt þar sem fyrra tímabilið er fyrir börn fædd 2008-2012 en síðara tímabilið er eingöngu fyrir börn fædd 2011-2012.

  • Fyrra tímabilið er frá 6. júní - 20.júlí (fyrir börn fædd 2008-2012).
  • Tveggja vikna sumarleyfi verður frá 23.júlí - 3.ágúst.
  • Síðara tímabilið er frá 7. - 17.ágúst (fyrir börn fædd 2011-2012).

Um er að ræða vikunámskeið sem standa frá kl. 9:00 - 16:00. Námskeiðin fara fram í Frístundamiðstöðinni Þorpinu sem stendur við Þjóðbraut 13. Alls verða níu námskeið í sumar og verður boðið upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið. Mikil útivera og skapandi starf mun einkenna sumarið. Þátttakendur koma sjálfir með nesti, þ.e. hressingu fyrir hádegi og hádegismat. Boðið verður upp á eftirmiðdegishressingu.

Alls komast 40 börn á hvert námskeið en hægt verður að skrá á biðlista ef námskeið fyllist.

Umsjónarmaður leikjanámskeiða er Aldís Ylfa Heimisdóttir. Leiðbeinendur leikjanámskeiða eru Hallur Freyr Sigurbjörnsson, Bryndís Gylfadóttir, Ársæll Rafn Erlingsson ásamt einum leiðbeinanda frá vinnuskóla.

Verð og greiðslufyrirkomulag

Verðskrá:

  • 3 daga námskeið = 9.000 kr.
  • 4 daga námskeið = 10.000 kr. 
  • 5 daga námskeið = 11.000 kr.
  • Systkinaafsláttur er 10%

Innifalið í námskeiðunum er öll dagskrá, samgöngur þegar við á og eftirmiðdagshressing. 

Greiðsla skal fara fram áður en námskeið hefst og eingöngu er hægt að greiða með kreditkorti í gegnum Nóra.

Skráning

Skráning og greiðsla á leikjanámskeið þarf að fara fram fyrir miðnætti á fimmtudögum eigi barn að byrja næsta mánudag þar á eftir. Öll skráning fer fram í gegnum skráningarkerfi Nóra.

Námskeið í boði

  • Vikan 6. - 9. júní (3 dagar) - Síðasti skráningardagur er 31. maí
  • Vikan 11. - 15. júní (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 7. júní
  • Vikan 18. - 22. júní (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 14. júní
  • Vikan 25. - 29. júní (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 21. júní
  • Vikan 2. - 6. júlí (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 28. júní
  • Vikan 9. - 13. júlí (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 5. júlí
  • Vikan 16. - 20. júlí (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 12. júlí

Síðustu tvö námskeiðin eru eingöngu fyrir börn fædd 2011 og 2012.

  • Vikan 7. - 10. ágúst (4 dagar) - Síðasti skráningardagur er 2. ágúst
  • Vikan 13. - 17. ágúst (5 dagar) - Síðasti skráningardagur er 9. ágúst

 

Athygli er vakin á því að lögmálið "fyrstur kemur, fyrstur fær" gildir og að börn mega að hámarki taka þátt í 7 námskeiðum yfir sumarið. Það er því gert ráð fyrir að börnin taki sér að minnsta kosti 4 vikur í sumarfrí.

Lágmarksfjöldi á hvert námskeið eru 10 þátttakendur. Þorpið áskilur sér réttin til þess að hætta við námskeið sökum dræmrar þátttöku.

Nánari upplýsingar um leikjanámskeiðin má nálgast hjá Aldísi Ylfu Heimisdóttur, umsjónarmanni leikjanámskeiða, í tölvupósti (aldisyh@akraneskaupstadur.is), í farsíma 8931969 eða í síma 4331252.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00