Fara í efni  

Laust starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar

Starfsmann (konu) vantar í 100% starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar. Um er að ræða framtíðarstarf. Starfið felst m.a. gæslu í búningsherbergjum kvenna, þrifum og afgreiðslu í íþróttamannvirkjum. Unnið er á dagvöktum frá kl. 08:00-16:00 og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Verkalýðsfélags Akraness.

Hæfnisviðmið:

  • Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
  • Reynsla af þjónustustörfum
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og jákvæðni

Athugið: Til að öðlast rétt á atvinnuviðtali þarf umsækjandi að standast hæfnispróf sundstaða sem sett verður upp áður en atvinnuviðtöl hefjast.

Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2016.

Nánari upplýsingar gefur Hörður Kári Jóhannesson, forstöðumaður íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar á netfangið hordur.johannesson@akranes.is og í síma 433-1100.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00