Fara í efni  

Laust starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar

Starfsmann (karl) vantar í 100% starf við íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar. Um er að ræða framtíðarstarf sem felst m.a. gæslu í búningsherbergjum karla og þrifum og afgreiðslu í íþróttamannvirkjum. Unnið er á tvískiptum vöktum og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Verkalýðsfélags Akraness.

Hæfnisviðmið:

  • Umsækjandi þarf að standast hæfnipróf sundstaða
  • Reynsla af þjónustustörfum
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og jákvæðni

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar. Nánari upplýsingar gefur Hörður Kári Jóhannesson forstöðumaður íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar í tölvupósti og í síma 433-1100.

Athuga: Til að öðlast rétt á atvinnuviðtali þarf umsækjandi að standast hæfnispróf sundstaða sem sett verður upp áður en atvinnuviðtöl hefjast. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00