Fara í efni  

Laust starf skólaliða í Brekkubæjarskóla

Skólaliði óskast til starfa. Um er að ræða 94% stöðu með vinnutíma frá kl. 7:45 -15:45 mánudaga til fimmtudaga og 7:45 -15:00 á föstudögum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Frímínútnagæsla nemenda bæði inni og úti og þrif á skólahúsnæðinu.

Menntun og hæfniskröfur

  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi.

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri í tölvupósti á netfangið arnbjorg.stefansdottir@brekkubaejarskoli.is eða í síma 433-1300.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00