Fara í efni  

Laust starf skólaliða í Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli

Skólaliði óskast til starfa. Um er að ræða 63% stöðu með vinnutíma er frá kl. 12:00-17:00 alla virka daga. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Frímínútnagæsla í hádegi og vinna á skóladagvist til loka vinnudags.

Menntun og hæfniskröfur

  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. 
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi.

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Benediktsson skólastjóri í tölvupósti.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00