Fara í efni  

Laus störf í Leikskólanum Vallarseli

Afmælishátíð á Vallarseli 2014.
Afmælishátíð á Vallarseli 2014.

Vallarsel er tónlistarleikskóli ásamt því að gera frjálsa leiknum hátt undir höfði. Á Vallarseli eru 6 deildir með 145 börnum og glöðum og jákvæðum hópi 36 starfsmanna. Kjörorð leikskólans er: „Syngjandi glöð í leik og starfi“.  

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar í Vallarseli:

Störf leikskólakennara

Leikskólakennarar óskast til starfa. Um er að ræða tvær 100% stöður. Stöðurnar eru lausar frá og með 4. ágúst 2015. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntun og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum með sérþarfir æskileg
  • Mikil færni og jákvæðni í samskiptum, lipurð og sveigjanleiki.
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Stundvísi og góð viðvera

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynhildur Björg Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti eða í síma 433-1220.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00