Fara í efni  

Landsleikur Íslands gegn Belgíu í körfubolta

Hvetjum alla til að koma á landsleik Íslands gegn Belgíu í körfubolta sem fram fer á Akranesi laugardaginn 29. júlí kl: 17:00 í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fyrir leik verður „Fan Zone“ á veitingastaðnum Gamla Kaupfélagið og um kl: 15:45 munu landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen og leikmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason, nýjasta stjarnan í íslenskum körfubolta, kíkja við og spjalla við stuðningsmenn. Um að gera að koma við á Gamla Kaupfélaginu og skapa góða stemmingu fyrir leik. Hvetjum sem flesta til að koma gangandi á leikinn þar sem miklar framkvæmdir eru á Vesturgötunni og takmörkuð bílastæði. Akranesið mun sigla aukaferðir í tengslum við leikinn og fer ferjan frá Vesturbugt í Reykjavíkurhöfn kl: 15:00 og til baka eftir leik kl: 19:30 frá Akraneshöfn. Siglingin tekur um 25 mín og er sérstakt tilboð farmiðum vegna leiksins, kr 3.000, fram og til baka.
 
Gaman er að segja frá því að í íslenska landsliðshópnum eru nokkrar tengingar við Vesturland. Feður Pavels Ermolinskij og Kristófers Acox spiluðu báðir með ÍA, Pavel á sinn fyrsta meistaraflokksleik skráðan með ÍA ásamt því að hafa leikið með Skallagrími. Axel Kárason og Sigtryggur Arnar Björnsson spiluðu lengi með Skallagrími og Hlynur Bæringsson á að baki glæstan feril með Snæfelli. Í þjálfarateymi íslenska liðsins er svo Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson. Það er því um að gera fyrir Vestlendinga og landsmenn alla að fjölmenna á Skagann á laugardaginn og styðja okkar menn til sigurs.
 
Áfram Ísland!

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00