Kvikmyndatökur á Akranesi dagana 15.–23. september
Íbúar og gestir á Akranesi mega eiga von á því að sjá aðeins óvenjulegt yfirbragð á bænum dagana 15.–23. september en þá fara fram kvikmyndatökur víðs vegar um bæinn.
Um er að ræða tökur á þýskri kvikmynd sem gerist á níunda áratug síðustu aldar. Af þeim sökum verða ákveðin svæði, götur og mannvirki tímabundið færð í svip þess tíma sem myndin gerist á.
Meðan á tökum stendur má búast við tímabundnum truflunum á umferð, stuttum lokunum og takmörkuðu aðgengi að einstökum svæðum. Kvikmyndatökuteymið mun leitast við að halda truflunum í lágmarki og verður umferð hleypt í gegn þegar aðstæður leyfa. Vegfarendur eru hvattir til að sýna tökuliðinu tillitssemi og fara eftir leiðbeiningum umferðarstjóra á tökustöðum.
Það er ánægjulegt að Akranes fái að gegna hlutverki í alþjóðlegri kvikmyndagerð og vonum við að íbúar hafi gaman af því að sjá bæinn bregða sér í hlutverk frá liðinni tíð.
Við þökkum íbúum og gestum fyrir þolinmæðina, skilninginn og gott samstarf meðan á tökum stendur.





