Kjörstaður vegna þjóðaratkvæðagreiðslu verður í Grundaskóla
04.08.2026
Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).
Nú liggur fyrir ákvörðun um kjörstað hér á Akranesi, hann verður í Grundaskóla og kjörfundur stendur frá kl. 9-22.
Með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan má finna upplýsingar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu, efni frá aðildarviðræðum Íslands sem fram fóru árin 2009-2013 og annað gagnlegt efni sem málið varðar.





