Kirkjubraut lokað frá Stillholti að Háholti
13.05.2026
Almennt - tilkynningar
Á föstudag, þann 15. maí, verður Kirkjubraut lokað frá umferðarljósunum við Stillholt niður að Háholti vegna viðgerða á götunni. Reiknað er með að lokunin verði fram á fimmtudag í næstu viku.
Á meðan á lokun stendur, verður sett tvístefna á götuna sem ekið er til norðurs, samanber meðfylgjandi mynd.
Ökumenn eru beðnir að takmarka ökuhraða á svæðinu, fylgjast vel með merkingum og fara gætilega á framkvæmdasvæðinu.





