Fara í efni  

Jólatré sótt 8.-9. janúar

Akraneskaupstaður mun sjá um hirðingu jólatrjáa daganna 8.-9. janúar næstkomandi og er það í boði fyrir alla bæjarbúa. Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu. Ath. eingöngu jólatré verða tekin, ekki annað sorp. Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem falla til vegna nýárs- og þrettándagleði.

Vakin er athygli íbúa á því að fram yfir áramót verða allar ruslatunnur á gönguleiðum botnlausar eða fjarlægðar þar sem tíðkast hefur að þær séu sprengdar upp á þessum árstíma. Biðjumst velvirðingar á ef það kann að valda óþægindum. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00