Fara í efni  

Jólaljósin tendruð á Akratorgi í dag

Jólasveinar syngja á Akratorgi
Jólasveinar syngja á Akratorgi

Margt var um manninn á Akratorgi í dag þegar jólaljósin á Akratorgi voru tendruð við hátíðlega athöfn. Skólakór Grundaskóla hóf athöfnina með flutningi á nokkrum jólasöngvum undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur.

Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar, sagði frá uppruna trésins og aðstoðaði systkinin Wiktoriu Fiszer 8 ára og Przemyslaw Fiszer 12 ára við að kveikja ljósin á jólatrénu. Jólatréið sem prýðir torgið í ár var gróðursett um 1980 í landi Stóru-Fellsaxlar norðan megin við Akrafjall.

Eftir að ljósin á trénu voru kveikt, birtust nokkrir þrælviltir jólasveinar sem virtust ekki alveg átta sig á því að þeirra tími væri ekki kominn. Þeir létu það ekki á sig fá og tóku nokkur lög með mannfjöldanum og áður en þeir hurfu á braut laumuðu þeir mandarínum í lófa barnanna.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00