Jólagjöf til starfsfólks Akraneskaupstaðar - Vill þitt fyrirtæki vera með?
10.11.2025
Akraneskaupstaður auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf kaupstaðarins til starfsfólks sveitarfélagsins í ár.
Fyrirkomulagið verður með sama hætti og jólin 2023, það er að starfsfólk fær gjafabréf ásamt upptalningu á fyrirtækjum á Akranesi sem skrá sig í verkefnið.
Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin á tímabilinu frá 18. desember 2025 – 28. febrúar 2026.
Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi á Akranesi.
Um er að ræða tæplega 900 gjafabréf sem afhent verða starfsmönnum um miðjan desember 2025.

Skráningarfrestur er til og með 20. nóvember n.k. Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Harpa Hallsdóttir, mannauðsstjóri Akraneskaupstaðar, á netfanginu harpa@akranes.is eða í síma 433-1000.