Fara í efni  

Íbúar á Akranesi orðnir sjö þúsund talsins

Sjöþúsundasti íbúinn á Akranesi fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi að kvöldi dags 30. júní. Foreldrar hans eru þau Arney Þyrí Guðjónsdóttir og Kristján Valur Sigurgeirsson sem eignuðust son, sem var fjórtán og hálf mörk að stærð. Þetta er fyrsta barn Arneyjar og Kristjáns sem fluttu á Akranes fyrir ári síðan. Kristján starfar í Norðuráli og Arney hefur unnið sem stuðningsfulltrúi. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri færði foreldrunum og nýjasta íbúanum hamingjuóskir frá Akraneskaupstað og þar sem drengurinn fæddist sama dag og setning Írskra daga fór fram þá fékk hann græna samfellu með merki írskra daga og þau Kristján og Arney fengu boli merkta írskum dögum. Einnig fengu þau staðfestingarskjal frá Akraneskaupstað um að drengur Kristjánsson fæddur 30 júní 2016 væri íbúi númer sjö þúsund á Akranesi.

 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00