Hjörtun komin upp við Stillholt
21.10.2026
Því fylgir ákveðinn fiðringur hjá mörgum Akurnesingum ár hvert þegar rauðu hjörtun eru komin upp í trén við Stillholt þar sem þau lýsa upp skammdegið fram yfir jól.
Viðmiðið er að hjörtun séu komin upp fyrir Vökudaga, menningarhátíð bæjarins. Á þeirri reglu verður engin undantekning í ár þrátt fyrir veðurlægðir undanfarinna daga því í dag luku starfsmenn Rafþjónustu Sigurdórs við að koma hjörtunum haganlega fyrir á trjágreinunum. Vökudagar hefjast svo á morgun með dagskrá þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá spjall við Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóra Akraneskaupstaðar um undirbúning jólanna í bænum og verkefni sumarsins.





