Fara í efni  

Haraldur hættir sem bæjarstjóri

Bæjarstjórn Akraness og Haraldur Benediktsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Haraldar Benediktssonar sem bæjarstjóra Akraneskaupstaðar. Starfslokin taka gildi í dag. Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og staðgengill bæjarstjóra verður starfandi bæjarstjóri fram yfir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram þann 16. maí næstkomandi.

Um er að ræða sameiginlega ákvörðun Haraldar og bæjarstjórnar enda var bæjarstjórn kunnugt um að Haraldur myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi ráðningu á næsta kjörtímabili. Líkt og greint var frá rétt í þessu hefur Haraldur ákveðið að bjóða sig fram til sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit. Bæjarstjórn óskar honum til hamingju með þá ákvörðun og þakkar um leið fyrir afar farsælt samstarf undanfarin þrjú ár. Haraldur hefur reynst góður bæjarstjóri sem hefur sinnt starfinu af bæði metnaði og alúð, Akraneskaupstað og íbúum á Akranesi til heilla. Jafnframt óska bæjarfulltrúar Haraldi gæfu og góðs gengis í þeim verkefnum sem framundan eru.

Haraldur mun verða Steinari til halds og trausts næstu vikurnar til að tryggja farsæla yfirfærslu þeirra verkefna sem nú eru á borði bæjarstjóra til staðgengils og annarra starfsmanna kaupstaðarins.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu