Fara í efni  

Grundaskóli tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna

Í gær, á alþjóðlegum degi kennara, voru tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna birtar. Grundaskóli hlaut þar tilnefningu í flokki framúrskarandi skólastarfs fyrir "fjölbreytt og gróskumikið og margháttað þróunarstarf sem hefur m.a. beinst að því að koma sem best til móts við ólíkar þarfir nemenda. Grundaskóli er m.a. kunnur fyrir sveigjanlega kennsluhætti, fjölbreytt þemaverkefni og öfluga kennslu í list- og verkgreinum."

Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum þann 10. nóvember, en markmið þeirra er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs.

Mikill heiður fyrir skólann

"Þessi tilnefning er mikill heiður fyrir skólann og starfsfólk hans," segir Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla. "Hún er jafnframt mikilvæg viðurkenning á því umfangsmikla þróunar- og umbótastarfi sem skólasamfélagið hefur unnið að undanfarin fimm ár."

Sigurður segir að ekki sé um hefðbundið þróunarverkefni að ræða heldur heildstæða umbótaáætlun. "Sú áætlun nær til fjölmargra þátta skólastarfsins og hefur verið unnin eftir skýrri verk- og tímaáætlun. Á undanförnum árum hefur starfsfólk, í nánu samstarfi við nemendur, foreldra og aðra í skólasamfélaginu, þróað nýjar lausnir og leiðir sem geta haft áhrif langt út fyrir veggi skólans."

Í myndbandinu hér fyrir ofan má sjá heimsókn í Grundaskóla eftir miklar endurbætur og spjall við Sigurð Arnar.

Leita lausna inn á við

Umræða um menntamál hefur að undanförnu verið bæði þung og neikvæð á köflum að mati Sigurðar. "Í Grundaskóla höfum við kosið að beina sjónum okkar að því sem við getum haft áhrif á. Skólasamfélagið hefur sameinast um að byggja á þeim styrkleikum sem fyrir eru, horfa gagnrýnið á eigið starf og leita jafnframt inn á við eftir lausnum. Umbætur snúast nefnilega ekki alltaf um að fá meira heldur líka um að hugsa og gera öðruvísi, nýta betur það sem við höfum og finna leiðir sem skila meiri árangri."

Síbreytilegt samfélag

Sigurður telur að vegferð Grundaskóla undanfarin ár geti haft þýðingu fyrir þróun skólastarfs til framtíðar. "Samfélagið tekur stöðugum breytingum, meðal annars vegna örra tækniframfara og breytinga á uppeldi, fjölskyldugerðum og þörfum barna og fjölskyldna. Skóli sem ætlar að mæta framtíðinni getur því ekki staðið í stað. Hann þarf að hafa skýra sýn á hlutverk sitt og þau gildi sem starfið byggir á, en um leið búa yfir hugrekki og sveigjanleika til að endurskoða, þróa og breyta."


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu