Gönguskíðaspor í kringum æfingasvæðið
01.03.2026
Í tilefni af einstaklega fallegu veðri og hvítri jörð ákváðu Akraneskaupstaður og Björgunarfélag Akraness að sameinast um að útbúa tvö gönguskíðaspor í kringum æfingasvæðið á Jaðarsbökkum.
Björgunarfélagið hófst handa í morgun og er að leggja lokahönd á verkið.
Skagamenn eru eindregið hvattir til að nýta sporin til útivistar og hreyfingar.





