Þróttur er að hefja vinnu við endurgerð á yfirborði götunnar á gatnamótum Dalbrautar og Stillholts. Lokun gatnamótanna hefst á morgun miðvikudag 9. september og stendur yfir næstu 2 vikurnar. Akandi og gangandi vegfarendur á svæðinu sýni aðgát og forðist framkvæmdasvæðið.