Gagnlegar upplýsingar um kosningarnar á Akranesi
Hér má finna allar helstu upplýsingar um komandi kosningar til bæjarstjórnar á Akranesi á morgun, laugardaginn 16. maí. Neðst á síðunni er að finna yfirlit yfir framboðslista og frambjóðendur, raðað í stafrófsröð eftir listabókstaf.
Kjörstaður: Grundaskóli, Espigrund 1, 300 Akranesi.
Kjörfundur þann 16. maí kl. 09.00 til kl. 22.00.
Fjöldi kjördeilda: Kjördeildir verða fjórar, líkt og undanfarin ár.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Akranesi er hjá sýslumanninum á Vesturlandi, Kirkjubraut 28 og er opið þar mánudaga–fimmtudaga kl. 09.00-15.00 og föstudaga kl. 09.00-14.00.
Móttaka utankjörfundaratkvæða: Tekið er á móti atkvæðum á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar, Dalbraut 4. Skrifstofan er opin frá kl. 9.00-12.00 í dag, föstudag. Einnig er unnt að skila utankjörfundaratkvæðum á Dalbraut 1 til 17.00 í dag, föstudag, en eftir lokun kl. 12.00 þarf að hafa samband við Steinar Adolfsson í síma 899-9180.
Talning atkvæða fer fram í Grundaskóla og er opin almenningi á skilgreindu áhorfendasvæði. Eiginleg talning atkvæða hefst að loknum kjörfundi kl. 22.00.

Yfirkjörstjórn Akraness/Akraneskaupstaðar:
- Einar Gunnar Einarsson, formaður, sími: 894-2946
- Björn Kjartansson, aðalmaður, sími: 898-2929
- Geir Guðjónsson, aðalmaður, sími: 698-1036
Framboðslistar og frambjóðendur
B - Framsókn og frjálsir
- Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi
- Liv Aase Skarstad, bæjarfulltrúi
- Sædís Alexía Sigurmundsdóttir, framkvæmdastjóri
- Karl Jóhann Haagensen, sérfræðingur
- Aníta Eir Einarsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur
- Elín Theódóra Reynisdóttir, félagsráðgjafi
- Björgvin Viktor Færseth, fulltrúi hjá kærunefnd útlendingamála
- Erla Edvardsdóttir, forstöðumaður
- Magni Grétarsson, byggingartæknifræðingur
- Erla Björg Kristjánsdóttir, stjórnandi í velferðarþjónustu
- Freyr Líndal Sævarsson, framkvæmdastjóri
- Adriana Monika Malczyk, starfsmaður Norðuráls
- Áslaug Guðmundsdóttir, kennari
- Jóhannes Geir Guðnason, rekstrarstjóri
- Íris Petra Jónsdóttir, háskólanemi
- Þröstur Karlsson, vélstjóri
- Elsa Lára Arnardóttir, skólastjóri
- Hlöðver Sigurðsson, fyrrum útgerðarmaður
C – Viðreisn
- Jón Guðni Guðmundsson, burðarþolssérfræðingur
- Helga Björg Þrastardóttir, matreiðslumeistari
- Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri
- Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona
- Guðmundur Claxton, tölvunarfræðingur
- Tinna Steindórsdóttir, grunnskólakennari og sálfræðinemi
- Ellert Hjelm Gestsson, verslunarmaður
- Aldís Ylfa Heimisdóttir, verkefnastjóri og knattspyrnuþjálfari
- Alexander Aron Guðjónsson, framkvæmdastjóri
- Hugrún Eva Valdimarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Drífa Dröfn Siggerðardóttir, verslunareigandi
- Sigfús Agnar Jónsson, vélfræðingur og vaktstjóri
- Ragnheiður Ásta Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri umbóta
- Ýmir Hjálmsson, háskólanemi
- Elírós Kjaran Zar, kvikmyndagerðarkona
- Jóhannes Finnur Halldórsson, eldri borgari
- Edit Ómarsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjaþjónusta og varaþingmaður
D – Sjálfstæðisflokkurinn
- Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi
- Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri
- Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi
- Viktor Elvar Viktorsson, húsasmiður
- Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
- Emil Kristmann Sævarsson, framkvæmdastjóri
- Ísak Örn Elvarsson, viðskiptastjóri
- Erla Karlsdóttir, aðalbókari
- Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingarverkefna
- Þura Björk Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
- Stefán Orri Ólafsson, lögfræðingur
- Anna Þóra Hannesdóttir, kennaranemi
- Ásta María Búadóttir, viðskiptafræðinemi
- Sigurjón Jósef Magnússon, tónlistarmaður
- Tjörvi Guðjónsson, fjármálastjóri
- Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
- Guðný Jóna Ólafsdóttir, verkefnastjóri
- Ólafur Guðmundur Adolfsson, alþingismaður
M – Miðflokkurinn
- Hrafn Ágúst Björnsson, öryggisráðgjafi
- Guðríður Þorbjörnsdóttir, stjórnsýslufræðingur
- Ólafur Rúnar Sigurðsson, sölu- og innkaupafulltrúi
- Hörður Svavarsson, rafvirkjameistari
- Aníta Hauksdóttir, framleiðsluplönun hjá Norðuráli
- Finney Aníta Thelmudóttir, lögfræðingur
- Tómas Sjöberg Kjartansson, eigandi/rekstrarstjóri Kölski
- Elly Sandra Ingvarsdóttir, sölumaður Norðanfiski
- Gerald Brimir Einarsson, stöðvarstjóri og þjálfari
- Hermann Unnarsson, atvinnuflugmaður og söluráðgjafi
- Ágúst Snær Þorsteinsson, pípulagningamaður
- Valdimar Þorvaldsson, bifreiðastjóri
- Steindór Mar Gunnarsson, nemi og starfsmaður Elkem
- Guðmundur Jóhann Steindórsson, verkefnastjóri
- Helga Kristín Haug Jónsdóttir, vélsmiður
- Emin Kadri, athafnamaður
- Jón Jónsson, verkamaður
- Óli Jón Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
S – Samfylkingin
- Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi
- Jónína Margrét Sigmundsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður í stuðningi við fólk með áfengis- og fíknivanda
- Kristinn Hallur Sveinsson, bæjarfulltrúi og sérfræðingur hjá Loftmyndum ehf.
- Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari og varabæjarfulltrúi
- Jón Hjörvar Valgarðsson, umsjónarmaður Arnardals og nemi við HÍ
- Katrín Valdís Hjartardóttir, svæðisstjóri æskulýðsmála í Vesturlandsprófastsdæmi
- Björn Guðmundsson, húsasmiður og varabæjarfulltrúi
- Þóranna Hildur Kjartansdóttir, sjúkraliði
- Gunnþórunn Valsdóttir, leikskólakennari
- Örn Arnarson, grunnskólakennari
- Margrét Bjarnadóttir, tannfræðingur
- Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, viðskipta- og markaðsfræðingur
- Agla Harðardóttir, sérfræðingur í gagnaþróun hjá Kviku Banka hf.
- Elvar Sigurjónsson, starfsmaður Ölgerðarinnar
- Gunnhildur Björnsdóttir, grunnskólakennari og leiðsagnarkennari
- Bjarni Vésteinsson, byggingafræðingur
- Ásta Egilsdóttir, kennari
- Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi og kennari





