Fara í efni  

Gagnleg uppeldisráð og verðmæt athygli

Skúli Bragi, Ársæll og Kristín voru með afar áhugaverða og góða fyrirlestra fyrir foreldra.
Skúli Bragi, Ársæll og Kristín voru með afar áhugaverða og góða fyrirlestra fyrir foreldra.

Góð mæting var á einstaklega vel heppnað foreldrakvöld sem fram fór í Tónbergi í gær. Þar var fjallað um skjátíma, samfélagsmiðla og stafrænt umhverfi barna, auk þess sem margt mikilvægt kom fram um hlutverk foreldra og mikilvægi þess að setja skýr og heilbrigð mörk í uppeldi. Það var forvarnarhópurinn Brúin sem stóð fyrir kvöldinu í samstarfi við foreldrafélög grunnskólanna. 

Kristín Ómarsdóttir og Skúli Bragi Geirdal frá Netvís fjölluðu um hvernig leikir, smáforrit og samfélagsmiðlar eru hönnuð til að fanga og halda athygli notenda. Þau ræddu jafnframt hvernig foreldrar geta stuðlað að heilbrigðum skjávenjum og hjálpað börnum að takast á við áskoranir stafræns umhverfis.

Ársæll Már Arnarson, prófessor við Háskóla Íslands, fjallaði um listina að vera „leiðinlegt“ foreldri og hvers vegna skýr mörk eru mikilvæg í uppeldi.

Foreldrakvöldið veitti foreldrum, forráðamönnum og öðrum áhugasömum tækifæri til að fræðast um málefni sem snerta daglegt líf fjölskyldna og velferð barna. 

Góðar upplýsingar fyrir foreldra á Netvís

Vert er að benda á vefsíðu Netvís, www.netvis.is, en þar má finna fræðslu og einfaldar en gagnlegar leiðbeiningar fyrir foreldra um netöryggi barna. Þar geta foreldrar meðal annars kynnt sér hvernig þeir geta stutt börn sín í öruggri og ábyrgri netnotkun.

Akraneskaupstaður þakkar fyrir góða þátttöku og mikilvæga umræðu um málefni sem snerta fjölskyldur og samfélagið allt.

Upplýsingar fyrir foreldra


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu