Fara í efni  

Gabríel Ísak Rauðhærðasti Íslendingurinn 2018

Frá Akratorgi í dag Mynd: Myndsmiðjan
Frá Akratorgi í dag Mynd: Myndsmiðjan

Hinn 15 ára gamli Skagamaður, Gabríel Ísak Valgeirsson, var í dag valinn Rauðhærðasti Íslendingurinn 2018 en valið var kunngjört á Akratorgi þar sem fram fór fjölskylduskemmtun á Írskum dögum. Dómnefndin var skipuð þremur starfsmönnum Gaman ferða sem bjóða einmitt sigurvegaranum flug til Dublin fyrir tvo. Margt var um manninn og fjölbreytt skemmtiatriði á dagskrá en Írskir dagar eru nú haldnir í 19. skipti.  Veður var með besta móti. Þó rignt hafi eftir hádegi varð veður sífellt betra og betra og um fjögur leitið skein sólin á hátíðargesti sem kunnu vel að meta. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00