Frístundatilboð í sumar fyrir börn í 8. bekk
Starfsfólk Þorpsins og mennta- og menningarsvið Akraneskaupstaðar hafa undanfarnar vikur unnið að því að setja saman fjölbreytt framboð námskeiða og annarra frístundatilboða fyrir nemendur í 8. bekk í grunnskólum bæjarins. Námskeiðunum er ætlað að koma í stað þátttöku í Vinnuskólanum í sumar.
Þátttaka er börnunum að kostnaðarlausu, en í boði er meðal annars listasmiðja, fjallganga, kvöldnámskeið í Hopplandi, fyrirlestur um jákvæðni, hugrekki og valdeflingu, leiklistarnámskeið, tímar í líkamsrækt, námskeið í skyndihjálp, gusa, námskeið í jöggli, hópferð í Skopp og ýmislegt fleira.
Auk námskeiðanna og frístundatilboðanna verður boðið upp á opin hús í Arnardal yfir sumartímann, bæði í júní og ágúst. Opnu húsin eru ætluð öllum unglingum í 8.–10. bekk á Akranesi og verður dagskrá kynnt nánar á samfélagsmiðlum Arnardals. Ekki hefur verið boðið upp á sumaropnun í Arnardal áður, fyrir utan aukaopnun árið 2020 í kjölfar Covid-faraldursins.
Nánari upplýsingar um frístundatilboðin má finna með því að smella hér.
Foreldrar barnanna hafa þegar fengið sent bréf með helstu upplýsingum og Akraneskaupstaður hvetur þá eindregið til að kynna sér framboðið með börnum sínum og hvetja þau til þátttöku. Skráning er hafin og fer fram hér á Abler.





