Frábær þátttaka í sumarlestri bókasafnsins
Í gær var haldið Húllum-hæ á Bókasafni Akraness, sem er um leið lokahátíð sumarlesturs sem safnið stendur fyrir ár hvert. Sumarlesturinn er fyrir 6-12 ára börn og stóð yfir frá 1. júní til 17. ágúst. Börnin skráðu sig til leiks á bókasafninu og fengu um leið lestrardagbók sem þau skrá í lesnar bækur og blaðsíður.
Þemað í ár var goðheimar og fyrir hverja lesna bók fengu börnin mynd af einhverju tengdu goðafræði, sem þau merktu með nafni og límdu á vegg við Ask Yggdrasils. Þá fengu þau einnig hvítan stein sem þau skrifuðu á rúnir fyrir hverja bók. Fyrir fimmtu hverja bók fengu börnin svo að velja sér smádót og þau sem kláruðu 30 bækur fengu glasamottu með mynd af keltneskum hnút.
Þátttaka í sumarlestrinum var frábær í ár og af þeim 175 sem skráðu sig til leiks tóku 119 virkan þátt. Krakkarnir lásu samanlagt 1.475 bækur og yfir 85 þúsund blaðsíður.
Á Húllum-hæinu kom trúðurinn Wally í heimsókn, en hann sá um að draga út vinningshafa ársins. Það voru þau Karítas Ólöf Sigurðardóttri, Dagný Ugla Karlsdóttir, Jóhannes Ragnar Karlsson og Olimpia Polok sem voru dregin út og fengu að launum bók Hallberu Jóhannesdóttur Á ferð og flugi með ömmu í Akrafjalli. Gaman er að segja frá því að þau Dagný og Jóhannes eru systkini.






