Fara í efni  

Fjölmennt á Malavímarkaði í Grundaskóla

Frá Malavímarkaðnum í dag.
Frá Malavímarkaðnum í dag.

Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk Grundaskóla verið að undirbúa árlegan Malavímarkað sem fram fór í Grundaskóla í dag, fimmtudaginn 29. nóvember milli klukkan 11:45 og 13:00. Til sölu var fjölbreytilegur varningur sem búinn er til af nemendum Grundaskóla en allur ágóði rennur til styrktar skólastarfi í Malaví, einu af fátækustu ríkjum heims. Auk þess sem gestir gátu rölt á milli sölubása gátu þeir slakað á inni á sal skólans þar sem hægt var að kaupa vöfflur og rjúkandi drykki en jafnframt buðu nemendur skólans upp á tónlistaratriði.

Malavísöfnunin, Að breyta krónum í gull,  hófst fyrir allmörgum árum þegar nemendur skólans ákváðu að leggja niður þá hefð að gefa hver öðrum jólagjafir en setja í stað þess ákveðna upphæð í söfnun þar sem markmiðið var að láta gott af sér leiða og gefa þeim sem þurfa meira á því að halda. Í gegnum árin hafa safnast heilmiklar fjárhæðir sem Rauði krossinn á Íslandi hefur haft milligöngu með að koma í réttar hendur. „Við í Grundaskóla erum afar stolt af þessu verkefni og myndast mikil tilhlökkun ár hvert þegar Malavímarkaður nálgast" segir Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri í Grundaskóla. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00