Færði Akraneskirkju þakklætisvott í tilefni af stórafmæli
Á sunnudag var því fagnað með hátíðarmessu og messukaffi að 130 ár eru frá því Akraneskirkja var vígð og 40 ár frá því safnaðarheimilið Vinaminni var tekið í notkun.
Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar færði kirkjunni þakklætisvott af þessu tilefni. Um var að ræða innrammaða ljósmynd úr Ljósmyndasafni Akraness af Páli Jónatan Pálssyni að mála lista í gluggum kirkjunnar árið 2003. Eins og sjá má var verkið unnið í himinháum stiga á þeim tíma, en í dag er það unnið í lyftu. Myndina tók Jónatan Pálsson.

Margt áhugavert kom fram í máli Þráins Haraldssonar sóknarprests í afmælinu. Hann sagði meðal annars frá því að við vígslu kirkjunnar þann 23. ágúst árið 1896 hafi hún verið þétt setin og hátíðargestir um 450 talsins, ungir jafnt sem aldnir, en kirkjunni var ætlað að rúma 300 gesti. Það var sóknarprestur Akurnesinga og prófastur, sr. Jón A. Sveinsson, sem annaðist vígsluna í fjarveru biskups Íslands, en óveður hamlaði för hans frá Reykjavík.
Íbúar á Akranesi voru 719 þetta ár og má því segja að Skagamenn hafi verið stórtækir þegar þeir ákváðu að byggja kirkju sem tók 300 manns í sæti. Þá var ekki orgel svo það pláss nýttist fyrir gesti og bekkirnir voru bara þjalir sem tóku þá fleiri í sæti. Í dag komast um 180 í sæti í kirkjuna og yfir 20 þúsund kirkjugestir sækja messur og aðrar athafnir á hverju ári.
Álíka margir sækja samkomur eða starfið í Vinaminni. Fátt hefur breyst í safnaðarheimilinu á þessum fjórum áratugum og þörf er á að endurnýja ýmislegt, einkum þó stóla. Af því tilefni hefur sóknarnefndin stofnað svokallaðan Stólasjóð Vinaminnis, og er sóknarbörnum og öðrum velunnurum boðið að styrkja safnaðarheimilið undir yfirskriftinni „Má bjóða þér sæti?“
Akraneskaupstaður óskar starfsfólki kirkjunnar og íbúum öllum til hamingju með stórafmæli þessara tveggja mannvirkja sem hafa sannarlega gagnast samfélaginu hér á Skaga vel í gegnum tíðina.





