Eldvarnareftirlitsmaður óskast
11.06.2026
Almennt - tilkynningar
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar óskar eftir að ráða tímabundið til eins árs metnaðarfullan og öflugan einstakling í fullt starf eldvarnareftirlitsmanns með áherslu á fræðslu- og forvarnarstarf.
Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem lögð er áhersla á að efla eldvarnir, auka öryggisvitund almennings og stuðla að fækkun slysa og bruna. Starfið snýst bæði um eftirlit, ráðgjöf og jákvæða forvörn og hentar einstaklingi sem hefur áhuga á öryggismálum, fræðslu og samskiptum við fjölbreytta hópa.
Allar nánari upplýsingar um starfið má sjá með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.





